Um Bjarmahlíð
                              

 Bjarmahlíð
Bjarmahlíð er þjónustumiðstöð fyrir fullorðna þolendur ofbeldis. Einnig þjónustar Bjarmahlíð 16 til 18 ára börn í samvinnu við barnaverndarnefnd.

Þar gefst einstaklingum kostur á viðtölum og ráðgjöf hjá félagsráðgjöfum, lögreglu og lögfræðingum þeim að kostnaðarlausu og á þeirra forsendum. Viðtölin fara öll fram í húsnæði Bjarmahlíðar, Aðalstræti 14.

Bjarmahlíð er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, félagsmálaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, Lögreglunnar á Norðurlandi Eystra, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Sjúkrahússins á Akureyri, Aflsins, Samtaka um kvennaathvarf, , Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.

Bjarmahlíð tók formlega til starfa 10. maí 2019

Þess má geta að Bjarmahlíð er rekin á styrkjum.

Styrktarreikningur Bjarmahlíðar

Kt: 560419-0660

Rnr: 0565-14-1297