Fræðsla fyrir nýnema Menntaskólans á Akureyri

Starfsfólk Bjarmahlíðar heimsótti nýverið Menntaskólann á Akureyri og veitti öllum nemendum í 1. bekk fræðslu um starfsemi miðstöðvarinnar, ofbeldi og afleiðingar þess. Markmið heimsóknarinnar var að virkja ungmennin til þátttöku í samtli um ofbeldi, kynna starfsemi Bjarmahlíðar og kanna þörf fyrir frekari fræðslu þar sem hægt væri að bæta við það sem þegar er í boði.

Mikilvægt er að vekja athygli á hlutverki Bjarmahlíðar sem upplýsingamiðstöðvar. Hingað geta einstaklingar geta leitað með spurningar, fengið fræðslu, upplýsingar og ráðgjöf, auk þess sem bent er á viðeigandi úrræði, komið á tengingum við aðra fagaðila og leitast við að koma málum í réttan farveg.

Í fræðslunni var meðal annars lögð áhersla á að ræða um óheilbrigð sambönd, óæskilegan samanburð, mikilvægi þess að hlusta á eigið innsæi og upplifun, og að sitja ekki eitt með tilfinningar sínar heldur leita sér aðstoðar, hvort sem það væri hjá Bjarmahlíð eða öðrum úrræðum. Fræðslan vakti góð viðbrögð meðal nemenda, sem sýndu efninu áhuga, þó áherslur og spurningar hafi verið misjafnar eftir hópum.

Þótt ofbeldisforvarnir séu öflugar innan skólakerfisins er mikilvægt að minna á að ofbeldi er oft dulið. Flestir þolendur sem leita til Bjarmahlíðar hafa áður fengið einhvers konar fræðslu um ofbeldi. Þrátt fyrir það er algengt að þeir efist um og geri lítið úr eigin upplifun, hvort hún sé „nógu alvarleg“ til að teljast ofbeldi og að þeir hafi þá ekki rétt á aðstoð. Því er brýnt að fræða ungt fólk um að ofbeldi getur birst með margvíslegum hætti, að hver sem er getur beitt því og að ofbeldi er aldrei ásættanlegt eða eðlilegt. Þekking um afleiðingar ofbeldis og áfalla er mikilvægur þáttur í að rjúfa vítahring ofbeldis og það er það sem fræðsla sem þessi stuðlar að.

Fræðslan í MA var sú fyrsta í röð framhaldsskólakynninga, en áform eru um að heimsækja fleiri framhaldsskóla á næstunni með það að markmiði að festa fræðsluna í sessi og efla vitund ungs fólks um þjónustuna. Með þessum heimsóknum vill Bjarmahlíð leggja sitt af mörkum til aukinnar fræðslu, öflugri forvarna og bættrar þjónustu fyrir ungt fólk.

Rétt er að taka fram að ungmenni undir 18 ára aldri geta leitað til Bjarmahlíðar og fengið móttökuviðtal, stuðning og fræðslu. Starfsfólki Bjarmahlíðar ber skylda samkvæmt barnaverndarlögum að tilkynna aðstæður ungmennis til barnaverndar telji það ungmenni búa við óviðunandi aðstæður, upplifa ofbeldi eða aðra vanvirðandi háttsemi eða stofna heilsu sinni og þroska í hættu. Slík mál eru unnin í nánu samstarfi við barnavernd eða alfarið á hennar vegum.