Soroptimistaklúbbur Tröllaskaga styrkir Bjarmahlíð

Soroptimistaklúbbur Tröllaskaga hefur veitt Bjarmahlíð styrk að upphæð 200.000 krónur. Um er að ræða minningargjöf í kjölfar fráfalls Þuríðar Sigurðardóttur á Dalvík, sem var stofnfélagi í klúbbnum. Málefni og starf Bjarmahlíðar voru Þuríði afar hugleikin og var það hennar ósk að minningargjafir við andlát hennar rynnu til starfseminnar.

Í tengslum við styrkveitinguna heimsóttu Birna teymisstýra og Karen ráðgjafi Bjarmahlíðar klúbbkonur á mánaðarlegum fundi þeirra í apríl, þar sem starfsemi og þjónusta Bjarmahlíðar var kynnt. Í kjölfarið buðu klúbbkonur upp á dýrindis heimagerða máltíð og skapaðist þar gott samtal um mikilvægi fræðslu, forvarna og samstarfs í málaflokki ofbeldis.

Í framhaldinu var ákveðið að Bjarmahlíð muni veita fræðslu fyrir ungmenni á Dalvík og í Fjallabyggð, sem og fyrir starfsfólk skóla og félagsþjónustu á svæðinu, í nóvember næstkomandi. Fræðslan verður hluti af árlegu 16 daga átaki Soroptimista gegn kynbundnu ofbeldi, Roðagyllum heiminn – þekktu rauðu ljósin, og fellur vel að markmiðum Bjarmahlíðar um aukna vitund, forvarnir og stuðning.

Bjarmahlíð þakkar Soroptimistaklúbbi Tröllaskaga kærlega fyrir styrkinn, hlýjar móttökur og gott samstarf.