Í vikunni sem leið veittu Oddfellowstúkurnar á Akureyri Bjarmahlíð styrk upp á 1.950.000 krónur. Hugrún Marta Magnúsdóttir yfirmeistari Rebekkustúkunnar Laufeyjar nr. 16, ásamt fulltrúum hinna stúkanna í Oddfellow afhentu styrkinn, henni Birnu Guðrúnu Árnadóttur teymisstýru Bjarmahlíðar.
Fulltrúar Oddfellow reglnanna fimm óskuðu sérstaklega eftir því að styrkurinn yrði nýttur til þess að efla þjónustu við ungmenni með áherslu á forvarnir og stafrænt umhverfi Bjarmahlíðar. Þess má geta að Bjarmahlíð er eina þolenda miðstöðin á landinu sem þjónustar hópinn 16 til 18 ára.
Við erum innilega þakklát fyrir þennan dýrmæta stuðning og hlýhuginn sem honum fylgir.
Takk kærlega fyrir okkur.

