Fræðsla

Ofbeldi hefur margar birtingarmyndir og geta afleiðingar þess haft alvarleg áhrif á þá sem fyrir því verða. Ofbeldi hefur ekki bara áhrif á þann sem verður fyrir því heldur alla í fjölskyldunni.

Afleiðingar ofbeldis

Eins og þekkt er getur ofbeldi í hvaða mynd sem er haft alvarlegar afleiðingar bæði til skemmri og lengri tíma fyrir þá sem því sæta.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur tilgreint margvíslegar afleiðingar fyrir brotaþola ofbeldis. Það er vitað að heilsufarslegar afleiðingar þess að sæta ofbeldi geta verið miklar svo sem líkamlegir verkir, aukin tíðni veikinda, þunglyndi, áfallastreituröskun, svefnerfiðleikar, andlegir sjúkdómar, aukin tíðni sjálfsvígstilrauna og sjálfsvíga auk áfengis- og fíkniefnamisnotkunar.

Sýnt hefur verið fram á að börn sem búa við ofbeldi eða verða vitni af ofbeldi geta orðið fyrir jafn skaðlegum áhrifum þó þau verði ekki sjálf fyrir ofbeldinu.

Ennfremur eru hópar í samfélaginu sem eru frekar í áhættu á að verða fyrir ofbeldi eins og aldraðir, fatlaðir og fólk af erlendum uppruna sem þekkir ekki rétt sinn og leiðir til að óska eftir aðstoð í samfélaginu.

Teymisstjóri Bjarmahlíðar tekur fyrsta viðtal við þjónustuþega

Mikilvægt er að einstaklingur upplifi sig við stjórn og upplifi sig örugga/n eða öruggt

Teymisstjóri útskýrir eðli starfseminnar og kynnir möguleg úrræði.

Upplýsir þjónustuþega um samstarfsaðila og þeirra hlutverk.

Flestir sem koma í fyrsta viðtal til teymisstjóra nýta sér úrræðin sem eru til staðar

Reglulega nýta þjónustuþegar sér fleiri en eitt úrræði Bjarmahlíðar